Mars Bílabjörgun

Innri vefurinn
— hvernig hann virkar

Kerfi fyrir útköll, flota og verkefni Mars. Hannað fyrir símann, því vinnan fer fram á ferðinni.

Frá Fannari

Sæll Skúli minn.

Þetta er gjöf — ég er ekki að ýta neinu að þér og það fylgir enginn reikningur. Þú mátt nota þetta eins og þér sýnist, eða láta það eiga sig. Það breytir engu okkar á milli.

Ástæðan er einföld: þú gefur mér von um að ég geti skilað af mér góðri þjónustu. Það er meira virði en þú heldur, og mig langaði bara til að gera eitthvað gott á móti.

Ef eitthvað er óskýrt eða þú vilt breyta einhverju — hringdu bara.

Fannar · SmartVefur ehf. · 786 2228

Fyrstu skrefin

  1. Opnaðu innri vefinnmarsbilar.is/innri — skráðu þig inn með aðgangnum hér að neðan.
  2. Settu hann á heimaskjáinniPhone: deilihnappur → „Bæta á heimaskjá". Android: punktarnir þrír → „Setja upp". Þá opnast hann eins og venjulegt app.
  3. Skráðu bílanaFarðu í Floti og bættu við bílunum. Þá geturðu valið hver fer í hvert útkall.
  4. Stilltu tilkynningarTannhjólið efst: settu inn símanúmer og netfang sem eiga að fá útköllin.

Flipar

Þegar útkall berst

  1. Þú færð SMS og tölvupóstUm leið og einhver ýtir á neyðarhnappinn á marsbilar.is — með nafni, símanúmeri og staðsetningu.
  2. Samþykkja eða hafnaSamþykkja: veldu bíl og bílstjóra. Hafna: skráðu ástæðu og láttu viðskiptavininn vita í SMS.
  3. Viðskiptavinurinn fær hlekkHann sér stöðuna á símanum sínum — hvaða bíll er á leiðinni og hver keyrir. Það fækkar símtölum þar sem spurt er hvenær bíllinn komi.
  4. LjúkaSkráðu kílómetra og verð. Þá er verkið komið í söguna og tölfræðina.

Aðgangur

Netföngin eru bara notendanöfn — þau þurfa ekki að vera til sem raunveruleg netföng. Hringdu í mig ef þú vilt breyta lykilorðinu eða bæta við fleiri notendum.

Opna innri vefinn → Til baka á marsbilar.is
Mars Bílaþjónusta ehf. · 852 2229 · 551 2346
Kerfi frá SmartVefur ehf.